Kempumót Striksins (já takið eftir Striksins, haldið þið ekki að Kempumótið sé komið með styrktaraðila) í Hlíðarfjalli 6. mars 2010.
Keppt verður í stórsvigi og samhliðarsvigi í nokkrum flokkum.
Við bryddum upp á nýjungum í ár og verður einnig liðakeppni.
Mótsreglur:
Allar þær kempur sem náð hafa 30 ára aldrinum mega skrá sig til leiks.
Gerð verður undantekning fyrir kempur á aldrinum 25-29 ára sem hættu keppni fyrir að minnsta kosti 2 árum.
Liðin verða að standa af 4 kempum eða 2 körlum og 2 konum
Mótsgjald verður auglýst síðar
Dagskrá:
Föstudagurinn 5. Mars
19:00 – 21:00 Létt skíðaæfing í braut
-startæfing
21:00 „Farastjórafundur“ í Skíðahóteli
-léttar veitingar í boði
Laugardagurinn 6. Mars
9:30-9:45 Brautarskoðun – karlar og konur
10:00 Start – konur byrja og svo karlar strax á eftir
11:30 Start síðari ferð – konur byrja og svo karlar strax á eftir
13:00-14:00 Lunch í tjaldi fyrir ofan skíðahótelið
14:30 Samhliðasvig – skoðun og skafa brautir
14:45 Start samhliðasvig
16:00 Áætluð mótslok
16:30 After ski á Bryggjunni
-tilboð á pizzu, bjór og skotum
20:00 Lokahóf á Strikinu/Pósthúsbarnum
-kvöldverður, verðlaunaafhending og skemmtun fram eftir nóttu
Hóptilboð á helgarpössum í Hlíðarfjall, 2 dagar kr. 3.990,-
Verð fyrir skíðapassa á föstudagskvöldið verður auglýst síðar, fer eftir hversu margir mæta.
Flug og gisting:
Hóptilboð á flugi og gistingu á Hótel KEA. Hópur miðast við 10 eða fleiri.
Verð á mann í flug og tvær nætur á hóteli kr. 27.800,- tveggja manna herbergi
Verð á mann í flug og tvær nætur á hóteli kr. 34.100,- eins manns herbergi
Hópafargjald í flug er kr. 16.300,- á mann miða við 10 manns eða fleiri.
http://www.visitakureyri.is/IS/gisting-og-radstefnur/Búið er að taka frá nokkur sæti í flug og einhver herbergi á Hótel KEA. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á netfangið skidakempur@gmail.com
Það verður að ganga frá greiðslum fyrir 29. jan.
Fylgist með á www.skidakempur.blogcentral.is
Hlökkum til að sjá sem flesta á Kempumótinu, við lofum miklu stuði.
Skíðakveðjur,
Mótsnefndin